a short blog this time

When Isa read my blog she said "you want to go to the zoo? It's only 5 minutes walk from here." So we decided to get me some sandals and shorts and then go to the zoo.The zoo was amazing.So many animals that I had never seen in my life.And at the end we were running around because it took such a long time to look at the animals that even though we were there 2 and a half hour before  closing we were running out of time.But I had lots of fun. After the zoo we went walking downtown and it was fun to see all the people there and performers on the streets.When we got home we saw that sandals are not a hobbit's best friend.So we are going to buy some sneakers instead. I've met some of Isa's friends and there has been some laughing and drinking :) And my friend Inga is in Barcelona and we went to watch a football game with her.She found an Irish pub here and we watched the game there.One half of the place was full of germans.We were lucky that we arrived early because the place got full.There was even a doorman outside controlling the group waiting outside.Letting them in one by one.Some people were waiting for 40 minutes or more.Anyway,I'm having lots of fun and will write more soon.

ciao :)

the reason that I can't wear sandals :) (like you can see on the photo,the sandals hurt me a little)


My trip to Barcelona

My first trip to another country started well.The flight got slightly delayed because they were waiting for some papers.In the plane I got to know a couple that were going back home from their honeymoon in Iceland.They went the circle around Iceland and enjoyed every minute.And are determined to go there again.Before landing we exchanged emails and if I ever go to Málaga then I'm supposed to visit them. After landing in Barcelona I got to tag along with them to get the luggage.Thankfully they knew their ways around there because the airport is quite big.And when I finally got my luggage Isabella was waiting for me outside.She had only been standing there for one and a half hour with no seats around ;)

My attempt at posing as a sophisticated world traveller didn't go well.Two steps out of the airport and I say " Hey,wow,a palm tree!!!". Isabella looked at me with a strange look like I was crazy :p After taking the bus from the airport we arrived at some square that I don't remember the name of "something like the main square in Barcelona".And there were beautiful fountains that changed colours and music playing and it looked so beautiful.And I was there trying not to look too much like a tourist.It would have gone better if I hadn't been dragging all my luggage with me. Then we took the metro. My first time in a train. It is nice when you have never gone in a train and the person with you says "look out for thieves" as you walk inside.All the time in the metro I was giving people a killer stare ;)

When we finally arrived home I was getting very tired.I tasted the coca cola there and found out that even though it isn't the same as the icelandic one I can still drink it :) But the water here tastes weird. It was weird having a glass of water and the aftertaste lasted for quite some time.When I woke up this morning I heard all kinds of birds outside.Which ended up in me thinking " I wonder if there is a zoo in Barcelona.I want to see all kinds of animals". I guess you can take the farmboy out of the farm.But you can't take the farm out of the farmboy ;)


waking up a sleeping giant

So I thought that it was time to start this up again.And this time in english.Although I think that a blog is dying because of facebook I'm still going to try and write something here every now and then.But this will have to do for today :)

untitled

 

 


Mín skoðun

Ég er mjög ánægður með að flóttafólkið sé komið. Ég er ennþá ánægðari með að þau fái aðlögun.Bæði í sambandi við skóla og íslenskukennslu. Ég er mjög hlynntur því að fólk sem flytji til Íslands læri íslensku og aðlagist íslensku samfélagi. Ef ég væri að flytja í annað land þá myndi ég aðlagast þeirri menningu og læra tungumálið þeirra. Ég er ekki að segja að þau eigi að hætta öllum siðum sem tilheyra þeirri menningu.Alls ekki. En þú verður að gera grein fyrir þér að þú ert í öðru landi sem hefur aðra siði og aðra menningu. Nú eru eflaust margir sem finnst þetta vera rasismi en það er alls ekki satt. Þetta hljómar eins og klisja en ég á fullt af vinum sem eru ekki fæddir hér á landi. Mér finnst bara að það eigi að hafa skilyrði fyrir því að fá ríkisborgararétt hér á landi. T.d. það að fara í íslenskunám.

Uppveðraður

Skítarok og rigning. Mér finnst það frábært. Finnst ágætt að fá smá haust. Finnst ég vera kominn heim í sveit þegar ég lít út um gluggann. Annars er mest lítið að frétta af mér. Búinn í sumarfríi og kominn aftur í vinnu. Langar aftur í sumarfrí en ég er nokkuð viss um að það sé ekki að fara að gerast. Fer að styttast í að ég verði 26 ára. Ætli grái fiðringurinn skelli ekki á mér bráðum. Meðan ég man þá er ég ekki með neinar sérstakar óskir um afmælisgjafir. Þær eru ekki skylda og ég er alltaf ánægður með það sem ég fæ.

Get ekki sofið

Allt of mikið að gerast í höfðinu á mér. Mig langar að fara að prófa eitthvað nýtt en finnst ég bundinn niður af fjölskyldu,vinum,vinnu og skorti á peningum. Finnst líf mitt vera að stefna niður á við. Vildi að ég gæti flúið allt saman og byrjað upp á nýtt. En ábyrgðartilfinningin sem hefur fylgt mér síðan pabbi dó (ég hef hana believe it or not) vill ekki sleppa af mér takinu. Líklega eins gott. En samt sem áður líður mér stundum eins og fugl í búri sem horfir á hina svífa frjálsa um himininn. Vildi að ég gæti hleypt út leyndarmálum sem eru að éta mig upp að innan. Vandamálið er að ég get ekki talað við hvern sem er. Ég hef á mínum tæplega 26 árum fundið eina manneskju sem ég gat treyst en í dag tölumst við ekki við.  Ég veit að það eru margir tilbúnir að hlusta á mig en ég á í miklum vandræðum með að treysta fólki. Það er ekki nóg að manneskja segi "treystu mér". Traust er eitthvað sem byggist upp á löngum tíma. En allavega þá er þetta það eina sem ég vildi segja í augnablikinu. Vona að ég geti rifið mig aðeins upp úr þunglyndinu og litið aðeins bjartari augum á framtíðina.


Nóg af atvinnutækifærum

Greinilega auðvelt fyrir mig að fá vinnu í augnablikinu

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/06/05/bodid_upp_a_dverga_i_brudkaupi/

 

http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/06/05/leitad_ad_hobbita/


Æi það á ekki að vera pressa að skrifa blogg

Þannig að ég geri það bara þegar ég nenni því. Ég er alltaf að komast meira og meira að því að ég er að verða gamall. Var næstum því búinn að segja nokkrum drengjum frá því um daginn að "þegar ég var ungur var bara ein sjónvarpsstöð og ekkert internet". Ég beit mig fast í tunguna áður orðin læddust út þannig að ég slapp með skrekkinn. Svo í gær var ég að átta mig á því að Benedikt hans Tóta er orðinn sextán ára!!!! Þessi drengur sem ég las stundum fyrir áður en hann fór að sofa á kvöldin. Enn hef ég nú ekki fundið nein grá hár þannig að ég er nú kannski ekki svo gamall. Ég er farinn að telja niður dagana þangað til ég fer í sumarfrí en það er víst ekki fyrr en í ágúst þannig að ég verð víst alveg nóg að vinna þangað til. Fer í frí 1. ágúst sem er föstudagur fyrir verslunarmannahelgi og verð í fríi allan mánuðinn. Verður víst nóg að gera. Það er verslunarmannahelgin, Gay Pride (það er ekkert að því að djamma þá) svo ætla ég að reyna að fara eina viku til Danmerkur!! og svo er Menningarnótt til að slá botninn í fríið en já þið lásuð rétt. Litli saklausi sveitastrákurinn ætlar að reyna að fara í sína fyrstu utanlandsferð á ævinni. Með minni heppni á ég örugglega eftir að verða stoppaður í tollinum og leitað VEEEEEL eða rændur eða villast svo illa að mynd af mér birtist á mjólkurfernum í margar vikur á eftir.

 Farið annars vel með ykkur og njótið sumarsins.

Kv. Litli saklausi sveitó


Að standa við það sem þú segir

Ég verð nú að hrósa meðleigjanda mínum fyrir að standa við orð sín. Á sunnudagskvöldið vorum við að ræða um hvort eitt atriði kæmi fyrir í myndinni Transporter eða Transporter 2. Ég hélt því fram að atriðið væri í nr. 1 en hún var nú alveg á því að það væri í nr 2.Endaði þetta með því að það var farið á vídeóleiguna og náð í mynd nr 2. Sá sem tapaði átti að labba eða skokka á göngustígnum meðfram sjónum á nærfötunum.Þegar við byrjuðum að horfa á myndina þá var hún svo viss um að  hafa rétt fyrir sér að veðmálinu var breytt yfir í að fara í sjóinn á nærfötunum. Eftir myndina var minn farinn að brosa breitt og ekki laust við að það hlakkaði í manni. Hún blótaði eins og versti sjóari og sagðist ætla að gera þetta strax til að vera búin að þessu. Þannig að það var haldið af stað út um miðnætti.Ég með myndavélina í hendi og hún á nærfötunum með handklæði utan um sig. Hún þurfti nú hjálp við að klöngrast yfir steinana og þarann,svo taldi hún í sig kjark og út í sjó. Það var búið að ákveða að það þyrfti að vera í 5 sekúndur í sjónum. Svo var haldið heim með einn kaldann meðleigjanda. Ég vonast til að geta sett inn einhverjar myndir frá þessu en hún er líklega búin að átta sig á því að sjórinn í Flórída og sjórinn á Íslandi eru ekki eins. Þetta sýnir bara að það borgar sig ekki að rökræða við snilling eins og mig.

Jæja

Það er víst langt síðan maður setti eitthvað hér inn.Margt búið að gerast síðan síðast.Jól,áramót og ýmislegt fleira.Svo er maður líka fluttur í Kópavoginn."Það er gott að búa í Kópavogi". Annars er mest lítið að frétta annað en að ég þarf að fara að ákveða hvað ég ætla að gera í sumarfríinu.Einhverjar hugmyndir?

l_5d7ce118c9b3de2b0ff6e30f1c4c3e74


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband